Sport

Dag­skráin í dag: Stór­leikir og stór­stjörnur út um allt

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kylian Mbappé og félagar í PSG verða í beinni í kvöld.
Kylian Mbappé og félagar í PSG verða í beinni í kvöld. Getty Images/Xavier Laine

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 14.50 hefst útsending frá Garðabæ þar sem Stjarnan mætir Keflavík í úrslitakeppni Subway-deildar kvenna í körfubolta. Keflavík vann stórsigur í fyrsta leik liðanna en vinna þarf þrjá til að komast í úrslitaeinvígið.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18.35 hefst upphitun fyrir undanúrslitaleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Þar mætast Borussia Dortmund og Frakklandsmeistara París Saint-Germain. Um er að ræða fyrri leik liðanna en hann hefst klukkan 19.00 og er að sjálfsögðu sýndur beint.

Klukkan 21.00 verður leikurinn gerður upp.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 18.35 er leikur Tenerife og Unicaja í ACB-körfuboltanum á Spáni í beinni útsendingu.

Vodafone Sport

Klukkan 07.00 er Premier Padel á dagskrá.

Klukkan 17.55 hefst útsending frá Bítlaborginni Liverpool þar sem heimakonur taka á móti Englandsmeisturum Chelsea. Gestirnir verða að vinna til að saxa á forskot Manchester City sem trónir á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×